Um sviðið
Narrow screen resolution Wide screen resolution default color green color orange color
Um sviðið PDF Prenta Veffang

Sviðstjóri yfir framkvæmda- og tæknisviði er Steingrímur Hauksson.

 

Á sviðinu eru eftirfarandi deildir:

Framkvæmdadeild, deildarstjóri er Stefán L. Stefánsson.

Hönnunardeild, deildarstjóri er Jón Ingi Guðmundsson

Fasteignadeild, deildarstjóri er Gunnar Már Karlsson 

Almenn skrifstofa, skrifstofustjóri er Sigurjón Ingvason

Garðyrkjustjóri er Friðrik Baldursson

Yfirverkstjóri Áhaldahússins er Jóhannes Pétursson.

 

 

Undir sviðið heyra jafnframt eftirfarandi stofnanir á vegum sveitarfélagsins:

- Vatnsveita Kópavogs

- Áhaldahús Kópavogs

- Fráveita

- Garðyrkjudeild

- Vinnuskóli

- Skólagarðar

- Eignasjóður fasteigna

- Kópavogshöfn  

 

Helstu verkefni sviðssins:  

Framkvæmdir

Allar framkvæmdir á vegum Kópavogsbæjar heyra undir verksvið Framvæmda- og eignasviðs. Framkvæmdadeild hefur umsjón og ber ábyrgð á verklegum framkvæmdum. Í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup og innkaupareglur Kópavogsbæjar fara allflestar framkvæmdir í útboð. Verkefnum á vegum sviðsins er skipt í eftirfarandi flokka:

Fasteignir - Nýbyggingar

Framkvæmdir við nýbyggingar eru á ábyrgð framkvæmdadeildar. Framkvæmdadeild annast útboð gerð verksamninga og eftirlit með nýbyggingaframkvæmdum. Ábyrgðarmaður á framkvæmdum við nýframkvæmdir er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri.
(Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Gatnagerð - Nýframkvæmdir

Framkvæmdir við gatnagerð eru í allflestum tilfellum á vegum verktaka sem Kópavogsbær hefur gert verksamning við. Framkvæmdadeild mun halda við excel lista yfir helstu nýframkvæmdir sem eru í vinnslu hverju sinni. Sá listi mun vera þjónustuborði aðgengilegur í gegnum One systems. Á umræddum lista verður tilgreindur áætlaður framkvæmdartími og hver sé og eftirlitsaðili með framkvæmdinni fyrir hönd Framkvæmdadeildar. Ábyrgðarmaður vegna framkvæmda við gatnagerð er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar. Allt viðhald og umhirða gatna er á hendi Áhaldahúss Kópavogs, ábyrgðaaðili er Jóhannes Pétusson
(Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Veitur

Til veituframkvæmda heyra framkvæmdir við vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir.

Framkvæmdir við vatnsveitu eru alfarið á vegum Kópavogsbæjar. Framkvæmdir Vatnsveita Kópavogs (VK) eru almennt unnar samhliða gatnagerð af verktökum undir eftirliti VK. Vatnsöflun og stofnlagnir frá Vatnsendakrika eru á ábyrgð VK VK sér um allt viðhald á brunnsvæðum, stofnlögnum og dreifilögnum. Heimtaugar VK í ný hús lagðar samhliða lagningu fjarskiptaheimtug og hitaveitu og skulu umsóknir um heimtaug berast til Orkuveitu Reukjavíkju. VK er með skrifstofu í Áhaldahúsi og er Jón Auðunsson vatnsveitustjóri ( Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það ). Bakvaktir eru hjá VK og er síminn 840-2690

Fráveita

Framkvæmdir við fráveitu eru alfarið á vegum Kópavogsbæjar og eru almennt unnar samhliða gatnagerð undir eftirliti Framkvæmdadeildar. Viðhald fráveitulagna og umhirða er á hendi Áhaldahús Kópavogs ábm Jóhannes Pétursson Sími, 5701660. Bilanavakt, tekur á móti tilkynningum um bilanir á gatna og veitukerfi og liðsinnir bæjarbúum utan venjulegs opnunartíma. Sími bilanavaktar er 892 8215. Tengiliður er Árni Björnsson, verkstjóri. S. 570 1663 / 896 1920 ( Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það )

Hitaveita

Framkvæmdir hitaveitu eru unnar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur og eru almenntu unnar samhlið gatnagerð undir eftirliti OR. Viðhald hitaveitu er á hendi OR Framkvæmdir við hitaveitu og rafveitu eru á vegum Orkuveitu Reykjavíkur, 5166000

Rafveita

Framkvæmdir rafveitu eru unnar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur og eru almenntu unnar samhlið gatnagerð undir eftirliti OR. Viðhald rafveitu eru á hendi OR

Gatnalýsing

Framkvæmdir við gatnalýsingu eru unnar á vegum OR en eru eign Kópavogsbæjar. Viðhald gatnalýsingar er á hendi OR

Fjarskiptalagnir

Míla ehf sér um lagningu fjarskiptalagna sími 5856000. Viðhald fjarskiptalagna er á hendi Mílu ehf.

Snjómokstur – hálkueyðing

Áhaldahús Kópavogs hefur umsjón með snjómokstri, hálkueyðingu og annari hreinsun gatna og stíga. Ábendingar vegna slíkra mála skulu berast áhaldahúsi í síma 5701660.

Hreinsun og iðhald

Áhaldahús hefur umsjón með hreinsun gatna, stíga og opinna svæða. Helstu verkefni áhaldahús við hreinsun og viðhald eru eftirfarandi:

- vélsópun gönguleiða, - viðhald steyptra, hellulagðra og malbikaðra gönguleiða, - frágang eftir gröft veitustofnana, einstaklinga og fyrirtækja - viðhald götukanta og götupolla - gerð niðurtekta á gangstéttum - uppsetning og viðhald sveifluhliða og handriða - grjóthreinsun og viðhald reiðstíga - viðhald göngubrúa.

Ábendingar vegna slíkra mála skulu berast áhaldahúsi í síma 5701660

*Kópavogsbær annast veghald innan sveitarfélagsins á götum sem ekki eru í einkaeigu. Kópavogbær annast ekki veghald innan lóða. Í veghaldi felst viðhald og endurbætur á götum. Viðhald á götum eru á hendi áhaldahús. Ábyrgðarmaður er Jóhannes Pétursson. Sími, 5701660.

Göngustígar

Framkvæmdir við göngustíga eru á ábyrgð framkvæmdadeildar. Ábendingar vegna mála er varða göngustíga skulu berast áhaldahúsi í síma 5701660

Reiðstígar

Framkvæmdir við reiðstíga eru á ábyrgð framkvæmdadeildar. Ábendingar vegna mála er varða reiðstíga skulu berast áhaldahúsi í síma 5701660

Reiðstígar

Framkvæmdir við reiðstíga eru á ábyrgð framkvæmdadeildar. Ábendingar vegna mála er varða reiðstíga skulu berast áhaldahúsi í síma 5701660

Götulýsing

Götulýsing heyrir undir framkvæmdadeild. Ábendingar vegna mála er varða götulýsingu skulu berast áhaldahúsi í síma 5701660 


Útboð – innkaup

Samkvæmt Innkaupareglum Kópavogsbæjar er meginreglan sú að beitt skuli útboðum við innkaup sveitarfélagsins. Framkvæmda- og tæknisvið annast öll útboðsmál er varða framkvæmdir eða fasteignir Kópavogsbæjar, þar með talin forvöl, útboð, fyrirspurnir, verðkannanir, innkaup á vörum, þjónustu og verklegar framkvæmdir. Framkvæmda- og tæknisvið gætir þess að innkaup séu í samræmi við lög og reglur sem um innkaup gilda.

Innkaupaaðferðir - Við innkaup Kópavogsbæjar skulu eftirfarandi innkaupaaðferðir notaðar:

• Útboð, opið eða lokað, og samningur/pöntun í kjölfarið.

• Fyrirspurn og samningur/pöntun í kjölfarið.

• Samningur eða pöntun án undangengins útboðs eða fyrirspurnar.

• Innkaup samkvæmt rammasamningi. Við innkaup Kópavogsbæjar er einnig heimilt, þar sem við getur átt, að beita eftirtöldum aðferðum:

• Samningskaupum að undangenginni birtingu útboðsauglýsingar. • Samningskaupum án undangenginnar birtingar útboðsauglýsingar.

• Samningskaupum vegna hönnunarsamkeppni.

 

Útboð

Opið útboð skal að jafnaði viðhaft þegar um er að ræða kaup á verki eða þjónustu sem margir geta framkvæmt eða veitt, eða vöru sem margir selja eða geta útvegað. Lokað útboð með eða án forvals Heimilt er að viðhafa lokað útboð ef raunhæfur samanburður næst og það þykir hagkvæmur kostur. Þegar um er að ræða vandasöm, faglega og/eða tímalega krefjandi og/eða fjárfrek verk er heimilt að gera áskilnað um að væntanlegir bjóðendur hafi bæði faglega og fjárhagslega getu til að framkvæma viðkomandi verk.

 

Forval

Forval er viðhaft til að velja þátttakendur í lokuðu útboði, samkeppni eða samningskaupum.

 

Auglýsing útboða

Útboð skulu auglýst og skal í auglýsingu koma fram hvar og hvenær útboðsgögn eru til afhendingar, hver kaupandi er, hvað boðið er út, hvar og hvenær skuli skila inn tilboði, hvar og hvenær þau eru opnuð, skilatími þess sem verið er að bjóða út og hvort skilatryggingar sé krafist.

Afhending útboðsgagna - Í auglýsingu á útboði er auglýst hvar útboðsgögn skulu afhent.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Framkvæmda- og tæknisviðs.

Skil á tilboðum - Í auglýsingu á útboði er tilgreint hvar tilboðum skal skilað. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Framkvæmda- og tæknisviðs.

 

C. Hönnun

Hönnunardeild hefur umsjón með hönnun allra mannvirkja og framkvæmda sem sveitarfélagið stendur fyrir.

Deildarstjóri hönnunardeildar er Jón Ingi Guðmundsson.

(Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

 

D. Fasteignir

Allar fasteignir sem eru í eigu Kópavogsbæjar eru í umsjón fasteignadeildar. Fasteignadeildin annast umsjón fasteigna, endurbætur og viðhald. Eignarsjóður heyrir undir fasteignadeild.

Deildarstjóri fasteignadeildar er Gunnar Már Karlsson.
(Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Fasteignadeild hefur jafnframt umsjón með félagslegu húsnæði í eigu sveitarfélagsins, hvað varðar umsjón, viðhald og endurbætur.

Ágúst Steindórsson er umsjónarmaður fasteigna húsnæðisnefndar.
(Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

 

E. Lóðir Lóðarúthlutun  – lóðarleigusamningar.

Lóðarúthlutun - úthlutun á byggingarrétti.  Framkvæmda- og tæknisvið annast lóðarúthlutanir.

Ábyrgðarmaður er Sigurjón Ingvasonn, hdl. viðtal fæst í síma 5701500. (Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Lóðarúthlutanir eru ávallt auglýstar í blöðum og á heimasíðu Kópavogbæjar. Tilgreint er í auglýsingu við hverja úthlutun hvar nálgast skuli úthlutunargögn sem og hverjir eru umsóknarfrestir. Gögn vegna lóðarúthlutunar eru afhent hjá þjónustuborði. Umsóknum um lóðir skal skilað til þjónustuborðs. Lóðargjöld Lóðargjöld eru ákveðin fyrir hverja úthlutun. Greiðslur lóðagjalda Þegar lóðum er úthlutað er lóðarhafa sent svokallað úthlutunarbréf. Í úthlutunarbréfi koma fram upplýsingar um lóðargjöld sem og greiðslumáta. Hægt er að staðgreiða lóðargjöld og er þá veittur afsláttur. Sveitarfélagið veitir jafnframt þann kost að greidd séu 10% af lóðargjöldum og eru eftirstöðvar svo greiddar með skuldabréfi.

 

Úthlutunarreglur

Úthlutunarreglur er að finna á heimasíðu Kópavogbæjar Umsókn um lóðarúthlutun. Í umsókn um lóðarúthlutun skal tilgreina þá lóð sem sótt er um og svo er til vara sótt um svæði. Umsókn um lóðarúthlutun skal fylgja yfirlýsing frá fjármálastofnun um greiðsluhæfi og lánshæfi, auk skattaskýrslu.

Fyrirtæki skulu leggja fram ársreikninga. Næsta úthlutun fyrir íbúðarhúsnæði er fyrirhuguð í Vatnsendahlíð í Kópavogi. Áætlað er að hún verði í lok sumars. Úthlutunin verður auglýst síðar.

Næsta úthlutun fyrir atvinnuhúsnæði hefur ekki verið ákveðin. Þegar lóðum er úthlutað er lóðarhafa sent svokallað úthlutunarbréf. Í því kemur fram hvenær áætlað sé að lóðin verði byggingarhæf.

Í sumum tilfellum er áætlað að sú afhending verði á ákveðnu tímabili. Ekki er því óalgengt að lóðarhafar leiti nánari upplýsinga um það hvenær lóðin verður byggingarhæf.

Hvenær verður lóðin mín byggingarhæf? Í þjónustuborði liggur frammi listi með upplýsingum um það hvenær lóðir verða byggingarhæfar.

 

Skil á lóðum

Senda þarf skriflega bréf til bæjarráðs þar sem óskað er eftir því að skila lóðinni og skal það undirritað af þeim aðilum sem fengu lóðinni úthlutað.

Eftir að bæjarráð hefur tekið erindið fyrir er hægt að óska eftir endurgreiðslu þegar greiddra lóðargjalda. Leita skal til innheimtudeildar vegna endurgreiðslu.

 

 

Lóðarleigusamningar

Framkvæmda og tæknisvið annast útgáfu lóðarleigusamninga.

Ábyrgðarmaður er Sigurjón Ingvason, hdl. viðtal fæst í síma 5701500. (Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Lóðarleigusamningar eru gefnar út eftir að lóð hefur verið úthlutað og lágmarksgjöld hafa verið greidd.

 

Endurnýjun lóðarleigusamninga

Lóðarleigusamningar eru gerðir til 50 ára. Mikið er um að óskað er eftir endurnýjun á eldri samningum. Er það einkum gert í tengslum við sölu á eignum. Framkvæmda og tæknisvið annast endurnýjun lóðarleigusamninga.

Ábyrgðarmaður er Sigurjón Ingvason, hdl. viðtal fæst í síma 5701500. (Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Hægt er að leggja fram umsókn um endurnýjun og er hægt að nálgast slíka umsókn hjá þjónustuborði.

Einnig er hægt að leggja fram beiðni um endurnýjun á lóðarleigusamningi með því að senda umsókn á netfangið ( Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

 

F. Garðyrkja

Garðyrkjustjóri hefur yfir umsjón með öllu er lýtur að gróðri og ræktun í sveitarfélaginu.

Garðyrkjustjóri er Friðrik Baldursson.
(Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Garðyrkjustjóri er í síma 5701500 eða hægt er að senda tölvupóst á netfang. (Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Helstu verkefni er heyra undir garðyrkjustjóra eru:

- Almenningsgarðar og opin svæði

- Opin leiksvæði

- Garðlönd

- Skólagarðar

- Vinnuskóli

- Lóðir stofnana bæjarins

 

Almenningsgarðar og opin svæði

Garðyrkjustjóri hefur umsjón með almenningsgörðum og öðrum opnum svæðum í sveitarfélaginu.

Garðyrkjustjóri hefur umsjón með nýframkvæmdum, endurbótum og öðru viðhaldi er snýr að slíkum svæðum.

 

Útivistarsvæði í Kópavogi

Opin leiksvæði - Garðyrkjustjóri hefur umsjón með leiksvæðum í eigu sveitarfélagsins og stýrir endurbótum, viðhaldi og eftirliti á slíkum svæðum.

 

Garðlönd - Kópavogsbær leigir bæjarbúum út garðlönd til matjurtaræktunar. Skikarnir eru fimmtíu fermetrar og afhendast plægðir seinni hluta maímánaðar.

Þeir eru í Fossvogsdal, norðan skólagarða við Víðigrund og einnig austast í Fossvogsdal í svokölluðu Meltungulandi. Tekið er við umsóknum um garðlönd seinni hluta aprílmánaðar á skrifstofu garðyrkjustjóra, Fannborg 2.

Tekið er á móti umsóknum í apríl. Leiga fyrir garðland er 3.200 kr.

 

Skólagarðar

Skólagarðar Kópavogs eru starfræktir á eftirtöldum stöðum:

- við Kópavogstún neðan Sunnuhlíðar.

- í Fossvogsdal við Víðigrund, við Dalveg.

- hjá endurvinnslustöð Sorpu.

- við Núpalind.

- norðan við leikskólann Núp í Kórum.

- sunnan við Hörðuvallaskóla.

Skólagarðarnir eru fyrir 8-13 ára börn og geta veitt allt að 250 börnum viðtöku. Þar fá þau útsæði, plöntur og fræ og leiðsögn við ræktun algengustu matjurta.

Leiðbeinendur og aðstoðarmenn starfa með börnunum, en auk ræktunarinnar er farið í leiki, skoðunarferðir, haldið íþróttamót, grillað og gert fleira skemmtilegt. Skólagarðarnir eru þó hvorki leikjanámskeið né gæsluvellir fyrir börn.

Forstöðumaður Vinnuskólans, Sigurður Grétar Ólafsson, hefur jafnframt umsjón með skólagörðum. Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  (Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Sjá nánari upplýsingar í maí á heimasíðu skólagarðanna, http://www.kopavogur.is/skolagarðar

 

Vinnuskóli

Undanfarna áratugi hefur Kópavogsbær boðið unglingum störf í vinnuskóla og hafa margir Kópavogsbúar stigið þar sín fyrstu skref á vinnumarkaði.

Helstu verkefni eru snyrting og fegrun bæjarins. Vinnuskóli Kópavogs starfar í júní og júlí ár hvert. Þar gefst 14 - 16 ára unglingum (úr 8. til 10. bekk grunnskóla) kostur á að vinna við fjölbreytt störf hjá bæjarfélaginu.

Vinnuskólinn, er með skrifstofu að Fífuhvammi 20 (frá 24.maí til 3.ágúst) Sími: 570 1680 Forstöðumaður Vinnuskólans er Sigurður Grétar Ólafsson. netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það   (Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Vinnuskólans, http://www.kopavogur.is/vinnuskoli.

 

Garðaþjónusta

Eldri borgarar og öryrkjar geta fengið garðaþjónustu hjá Vinnuskólanum þar sem um er að ræða aðstoð við slátt og hirðingu lóða.

Þessi þjónusta er á vægu verði. Pantanir eru teknar niður hjá vinnuskóla Kópavogs í síma 570 1680.

Gjaldskrá 2008 Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Vinnuskólans, http://www.kopavogur.is/vinnuskoli

 

Lóðir stofnana bæjarins

Garðyrkjustjóri hefur umsjón með viðhaldi og framkvæmdum á stofnanalóðum bæjarins.

Trjáfellingar

Ekki þarf að sækja um leyfi til að fella tré á eigin lóð í Kópavogi en garðyrkjustjóri veitir ráðgjöf varðandi þessi mál, eftir því sem hægt er.

Kópavogsbær veitir íbúum ekki aðstoð við þessi mál.

Tré nágranna míns valda mér vandræðum vegna skugga / útsýnismissis eða þ.h. Kópavogsbær blandar sér ekki í slík mál

 

G. Mæli- og hæðarblöð

Fyrir hverja lóð eru til mæli- og hæðarblöð. Mæli- og hæðarblöð eru mjög oft kölluð lóðarblöð. Hæðar- og mæliblöð eru hnitsettir uppdrættir yfir tiltekna lóð þar sem fram koma upplýsingar um staðsetningu, stærð, byggingarreit, hæðarkóta, lögun, ýmsar kvaðir o.fl.

Ábyrgðarmaður vegna mæli- og hæðarbaða er Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri.

Beiðnir og umsóknir um afrit af mæli- eða hæðarblöðum skulu sendar Bjarka Valberg, landfræðingi eða Sigfríði Lárusdóttur, tækniteiknara. Þau eru í síma 5701559 og 5701557 (netfang Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.) (netfang Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

H. Landupplýsingakerfi - kort og myndir Ábyrgðarmaður yfir upplýsingakerfi er Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri.

Öll mál er varða landupplýsingakerfið skulu berast Bjarka Valberg, landfræðingi, sími 5701559 (netfang Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það. )

Hægt er að nálgast kort og myndir af Kópavogi hjá Bjarka Valberg, sími 5701559.

 

I. Umferðarmál- umferðarnefnd

Umferðarnefnd heldur fundi mánaðarlega. Umferðarnefnd fjallar um öll mál er varða umferðarmál. Erindi frá íbúum er varða umferð, t.d. vegna umferðarhávaða, umferðarhraða, beiðni um hraðahindrun ofl. skal beina til umferðarnefndar.

Erindi sem varða umferðarmál skulu send á starfsmann umferðarnefndar sem er Jón Ingi Guðmundsson, deildarstjóri, ( Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það )

 

J. Annað Dýrahald (hundar / kettir) - Meindýr

Heilbrigðiseftirlit hefur umsjón með þessum liðum. Sími er 5505400.

 

Skilti og merkingar

Áhaldahús Kópavogs sér um uppsetningu, viðhald og hreinsun umferðarskilta, götuheitaskilta, vegvísa, skiltabrúa, umferðarspegla og hraðaskilta.

Sama gildir um málun gatna, bílastæða og götukanta. Áhaldahús Kópavogs tekur við ábendingum og kvörtunum varðandi skilti og merkingar í Kópavogi í síma: 570 1660

 

Sorphirða – Sorptunnur – Sorphirðudagar

Upplýsingar um sorphirðudaga er að finna á heimasíðu Kópavogsbæjar. Áhaldahúsið heldur utan um umsóknir um sorptunnur eða aukatunnur. Sótt er um í síma 5701660,tengiliður er Vignir.
Hér má finna kort af Sorphirðudögum fyrir árið 2009.

 

Strætó

Strætó sér um almenningssamgöngur í Kópavogi og veitir allar upplýsingar um gjaldskrá og leiðakerfi. Sími: 540 2700 http://www.straeto.is.

Beiðni um aðgang að gögnum eða skjölum í vörslu sviðsins skulu berast Sigurjóni Ingvasyni hdl, skrifstofustjóra. (netfang Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það.)

 

 

Upplýsingar

Framkvæmda- og tæknisvið
Fannborg 2
Sími: 570-1500
Opnunartími: 08:00 - 16:00
 

Flýtileiðir

  • Lóðarúthlutun Kópavogs
      

    Úthlutun lóða

    Hér er hægt að sækja um lausar lóðar.
  •   
    Lóðarblöð


    Lóðarblöð

    Hér er hægt að nálgast lóðarblöð.
  • Umsóknir sviðsins


    Umsóknir

    Hér er hægt að nálgast allar umsóknir sviðsins.