Lóðir
| Lóðir |
|
|
|
|
Lóðarúthlutun – úthlutun á byggingarrétti Framkvæmda- og tæknisvið annast lóðarúthlutanir. Ábyrgðarmaður er Sigurjón Ingvason, hdl. og er hann með viðtalstíma á milli 11 og 12 alla daga í síma 5701500. Lóðargjöld eru ákveðin fyrir hverja úthlutun. Þegar lóðum er úthlutað er lóðarhafa sent svokallað úthlutunarbréf. Í úthlutunarbréfi koma fram upplýsingar um lóðargjöld sem og greiðslumáta. Hægt er að staðgreiða lóðargjöld og er þá veittur afsláttur. Sveitarfélagið veitir jafnframt þann kost að greidd séu 10% af lóðargjöldum og eru eftirstöðvar svo greiddar með skuldabréfi. Úthlutunarreglur er að finna á heimasíðu Kópavogbæjar Í umsókn um lóðarúthlutun skal tilgreina þá lóð sem sótt er um og svo er til vara sótt um svæði. Umsókn um lóðarúthlutun skal fylgja yfirlýsing frá fjármálastofnun um greiðsluhæfi og lánshæfi, auk skattaskýrslu. Fyrirtæki skulu leggja fram ársreikninga. Í þjónustuborði liggur frammi listi með upplýsingum um það hvenær lóðir verða byggingarhæfar. Senda þarf skriflega bréf til bæjarráðs þar sem óskað er eftir því að skila lóðinni og skal það undirritað af þeim aðilum sem fengu lóðinni úthlutað. Eftir að bæjarráð hefur tekið erindið fyrir er hægt að óska eftir endurgreiðslu þegar greiddra lóðargjalda. Leita skal til innheimtudeildar vegna endurgreiðslu. Framkvæmda og tæknisvið annast útgáfu lóðarleigusamninga. Ábyrgðarmaður er Sigurjón Ingvason, hdl. og er hann með viðtalstíma á milli 11 og 12 alla daga í síma 5701500. Lóðarleigusamningar eru gefnar út eftir að lóð hefur verið úthlutað og lágmarksgjöld hafa verið greidd. Lóðarleigusamningar eru gerðir til 50 ára. Mikið er um að óskað er eftir endurnýjun á eldri samningum. Er það einkum gert í tengslum við sölu á eignum. Framkvæmda og tæknisvið annast endurnýjun lóðarleigusamninga. Ábyrgðarmaður er Sigurjón Ingvason, hdl. og er hann með viðtalstíma á milli 11 og 12 alla daga í síma 5701500. Hægt er að leggja fram umsókn um endurnýjun og er hægt að nálgast slíka umsókn hjá þjónustuborði. Einnig er hægt að leggja fram beiðni um endurnýjun á lóðarleigusamningi með því að senda umsókn á netfangið
Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það
Hér er að finna upplýsingar um þær lóðir sem eru í úthlutun, næstu fyrirhuguðu úthlutanir og umsóknar eyðublöð. |
|
Framkvæmda- og tæknisvið Fannborg 2 Sími: 570-1500 Opnunartími: 08:00 - 16:00 |