Um sviðið arrow Lóðarblöð
Narrow screen resolution Wide screen resolution default color green color orange color
Lóðarblöð PDF Prenta Veffang

Hæðar- og mæliblöð 

Hér til hægri í hæðar- og mæliblaðaleit er hægt að finna hæðar- mæliblöð yfir flest hús í Kópavogi.

Blöðin eru á skráarsniðinum .pdf. Ef óskað er eftir öðru skráarsniði skal hafa samband við Framkvæmda og tæknisvið Kópavogsbæjar

Hæðar- og mæliblöð

Fyrir hverja lóð eru til mæli- og hæðarblöð. Mæli- og hæðarblöð eru mjög oft kölluð lóðarblöð. Hæðar- og mæliblöð eru hnitsettir uppdrættir yfir tiltekna lóð þar sem fram koma upplýsingar um staðsetningu, stærð, byggingarreit, hæðarkóta, lögun, ýmsar kvaðir o.fl. Ábyrgðarmaður vegna mæli- og hæðarbaða er Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri. Beiðnir og umsóknir um afrit af mæli- eða hæðarblöðum skulu sendar Sigfríði Lárusdóttur, tækniteiknara. Hún er í síma 5701559, netfang Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það  

 

 Landupplýsingakerfi - kort og myndir

Ábyrgðarmaður yfir upplýsingakerfi er Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri. Öll mál er varða landupplýsingakerfið skulu berast Bjarka Valberg, landfræðingi, sími 5701566 (netfang Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það ) Hægt er að nálgast kort og myndir af Kópavogi hjá Bjarka Valberg, sími 5701566.