Um sviðið arrow Framkvæmdadeild arrow Garðyrkjustjóri
Narrow screen resolution Wide screen resolution default color green color orange color
Garðyrjustjóri PDF Prenta Veffang

Garðyrkja

Garðyrkjustjóri hefur yfir umsjón með öllu er lýtur að gróðri og ræktun í sveitarfélaginu. Garðyrkjustjóri er Friðrik Baldursson. Garðyrkjustjóri er með viðtalstíma alla virka daga á milli 11:00 - 12:00 í síma 5701500. Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það

Helstu verkefni er heyra undir garðyrkjustjóra eru:

- Almenningsgarðar og opin svæði - Opin leiksvæði - Garðlönd - Skólagarðar - Vinnuskóli - Lóðir stofnana bæjarins

Almenningsgarðar og opin svæði

Garðyrkjustjóri hefur umsjón með almenningsgörðum og öðrum opnum svæðum í sveitarfélaginu. Garðyrkjustjóri hefur umsjón með nýframkvæmdum, endurbótum og öðru viðhaldi er snýr að slíkum svæðum. ATH tengil á bæklinginn Útivistarsvæði í Kópavogi

Opin leiksvæði. Garðyrkjustjóri hefur umsjón með leiksvæðum í eigu sveitarfélagsins og stýrir endurbótum, viðhaldi og eftirliti á slíkum svæðum.

Garðlönd

Kópavogsbær leigir bæjarbúum út garðlönd til matjurtaræktunar. Skikarnir eru fimmtíu fermetrar og afhendast plægðir seinni hluta maímánaðar. Þeir eru í Fossvogsdal, norðan skólagarða við Víðigrund og einnig austast í Fossvogsdal í svokölluðu Meltungulandi. Tekið er við umsóknum um garðlönd seinni hluta aprílmánaðar á skrifstofu garðyrkjustjóra, Fannborg 2, milli kl. 11 og 12. Tekið er á móti umsóknum í apríl. Leiga fyrir garðland er 3.200 kr.

Skólagarðar

Skólagarðar Kópavogs eru starfræktir á eftirtöldum stöðum: við Kópavogstún neðan Sunnuhlíðar, í Fossvogsdal við Víðigrund, við Dalveg, hjá endurvinnslustöð Sorpu, við Núpalind, norðan við leikskólann Núp og í Kórum, sunnan við Hörðuvallaskóla. Skólagarðarnir eru fyrir 8-13 ára börn og geta veitt allt að 250 börnum viðtöku. Þar fá þau útsæði, plöntur og fræ og leiðsögn við ræktun algengustu matjurta. Leiðbeinendur og aðstoðarmenn starfa með börnunum, en auk ræktunarinnar er farið í leiki, skoðunarferðir, haldið íþróttamót, grillað og gert fleira skemmtilegt. Skólagarðarnir eru þó hvorki leikjanámskeið né gæsluvellir fyrir börn. Forstöðumaður Vinnuskólans, Sigurður Grétar Ólafsson, hefur jafnframt umsjón með skólagörðum. Netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það Sjá nánari upplýsingar í maí á heimasíðu skólagarðanna, http://www.kopavogur.is/skolagarðar Gjald í skólagarða er 3.200 kr.

Vinnuskóli

Undanfarna áratugi hefur Kópavogsbær boðið unglingum störf í vinnuskóla og hafa margir Kópavogsbúar stigið þar sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Helstu verkefni eru snyrting og fegrun bæjarins. Vinnuskóli Kópavogs starfar í júní og júlí ár hvert. Þar gefst 14 - 16 ára unglingum (úr 8. til 10. bekk grunnskóla) kostur á að vinna við fjölbreytt störf hjá bæjarfélaginu.

Vinnuskólinn, er með skrifstofu að Fífuhvammi 20 (frá 24.maí til 3.ágúst) ATH Sími: 570 1680 Forstöðumaður Vinnuskólans er Sigurður Grétar Ólafsson. netfang: Þetta póstfang er verndað fyrir ruslpósti þú þarft að virkja JavaScript til að sjá það

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Vinnuskólans, http://www.kopavogur.is/vinnuskoli.

Garðaþjónusta

Eldri borgarar og öryrkjar geta fengið garðaþjónustu hjá Vinnuskólanum þar sem um er að ræða aðstoð við slátt og hirðingu lóða. Þessi þjónusta er á vægu verði. Pantanir eru teknar niður hjá vinnuskóla Kópavogs í síma 570 1680. Gjaldskrá 2008 Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Vinnuskólans, http://www.kopavogur.is/vinnuskoli

Lóðir stofnana bæjarins

Garðyrkjustjóri hefur umsjón með viðhaldi og framkvæmdum á stofnanalóðum bæjarins.

Trjáfellingar

Ekki þarf að sækja um leyfi til að fella tré á eigin lóð í Kópavogi en garðyrkjustjóri veitir ráðgjöf varðandi þessi mál, eftir því sem hægt er. Kópavogsbær veitir íbúum ekki aðstoð við þessi mál. Tré nágranna míns valda mér vandræðum vegna skugga / útsýnismissis eða þ.h. Kópavogsbær blandar sér ekki í slík mál

 

Upplýsingar

Framkvæmda- og tæknisvið
Fannborg 2
Sími: 570-1500
Opnunartími: 08:00 - 16:00