Framkvæmdadeild
| Gagnleg kort |
| Tónlistarhús |
| Salalaug |
| Óperuhús |
| Áhugaverðir staðir |
| Framkvæmdadeild |
|
|
|
|
Framkvæmdir Framkvæmdadeild hefur umsjón og ber ábyrgð á verklegum framkvæmdum. Í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup og innkaupareglur Kópavogsbæjar fara allflestar framkvæmdir í útboð. Fasteignir - Nýbyggingar Framkvæmdir við nýbyggingar eru á ábyrgð framkvæmdadeildar. Framkvæmdadeild annast útboð gerð verksamninga og eftirlit með nýbyggingaframkvæmdum. Ábyrgðarmaður á framkvæmdum við nýframkvæmdir er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri. Gatnagerð Nýframkvæmdir Framkvæmdir við gatnagerð eru í allflestum tilfellum á vegum verktaka sem Kópavogsbær hefur gert verksamning við. Framkvæmdadeild mun halda við excel lista yfir helstu nýframkvæmdir sem eru í vinnslu hverju sinni. Sá listi mun vera þjónustuborði aðgengilegur í gegnum One systems. Á umræddum lista verður tilgreindur áætlaður framkvæmdartími og hver sé og eftirlitsaðili með framkvæmdinni fyrir hönd Framkvæmdadeildar. Ábyrgðarmaður vegna framkvæmda við gatnagerð er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar. Allt viðhald og umhirða gatna er á hendi Áhaldahúss Kópavogs, ábyrgðaaðili er Jóhannes Pétusson. Veitur Til veituframkvæmda heyra framkvæmdir við vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir. Deildarstjóri framkvæmdadeildar er Stefán L. Stefánsson. |
|
Framkvæmda- og tæknisvið Fannborg 2 Sími: 570-1500 Opnunartími: 08:00 - 16:00 |