Um sviðið arrow Framkvæmdadeild arrow Áhaldahús
Narrow screen resolution Wide screen resolution default color green color orange color
Áhaldahús PDF Prenta Veffang
Áhaldahús Kópavogsbæjar
Aðsetur : Álalind 1
Sími 570 1660

Vatnsveita 570-1669
Vélamiðstöð 570-1668
Birgðastöð 570-1670
Trésmiðja 570-1671

Opið virka daga 8:00 - 16:30

Áhaldahús Kópavogs er til húsa að Álalind 1.
Starfssemi Áhaldahúss er skipt í fimm deildir Útivinnudeild, Garðyrkjudeild, Vélaverkstæði,
Trésmiðja, Birgðastöð og Vatnsveita.

Í Áhaldahúsi er bilanavakt og gæsluvakt bæjarins, sem tekur á móti tilkynningum um bilanir
á gatna og veitukerfi og liðsinnir bæjarbúum utan venjulegs opnunartíma. Bilanasími er 892 8215.
Bilanasími Vatnsveitu er 840-2690

Yfirverkstjóri Áhaldahúss er Jóhannes Pétursson , tæknifræðingur.

Verkstjóri og umsjónarmaður vegna lausagöngu hrossa er Árni Björgvinsson.

Eftirlitsverkstjóri gatna-,gangstétta- og kantsteinaframkvæmda er Bjarni Jónsson

Umsjónarmaður jarðvegstipps, forðagæslu og númerslausra bifreiða í gatnakerfi og landi
bæjarins er Jón Ingi Ragnarsson

Ritari er María Vera Gísladóttir.

Sorphreinsun:
Áhaldahús er tengiliður íbúa við verktaka, sem sinnir sorphreinsun í Kópavogi. Einnig sér
Áhaldahúsið um að dreifa sorpílátum til íbúa. Kvartanir og ábendingar vegan sorphirðu
Vignir Pálsson þjónustufulltrúi.

Vatnsveita:
Ný vatnsveita var tekin í notkun árið 2007. Byggt var dæluhús fyrir 6 borholudælur og 1000
m³ vatnstankur í Vatnsendakrikum. Einnig var byggður 4000 m³ miðlunartankur í
Heimsenda, dælustöð við Tröllakór og tengihús við Reykjanesbraut. Settar voru upp
tvær vara rafaflstöðvar. Aflagðar voru fjórar dælustöðvar með samtals 16 dælum.
Einnig er 1300 m³ miðlunartankur við Digranesheiði. Töluvætt eftirlitskerfi fylgist
með rennsli og þrýstingi víðsvegar í kerfinu ásamt heildar rennsli inn á hin ýmsu svæði.
Við vatnsveituna starfa 5 menn sem sjá um allar nýlagnir og viðhald vatnslagna. Forstöðumaður Vatnsveitu Kópavogs er Jón Auðunsson.

Útivinnudeild:
Sér um viðhald á gatna, göngustíga og holræsakerfis bæjarins, hreinsun gatna og opinna
svæða, umferðamerkingar, snjómokstur ásamt þjónustu við stofnanir og íbúa bæjarins.
Einnig sinnir deildin ýmsum minni nýframkvæmdum við holræsi, stíga og gatnagerð.

Garðyrkjudeild:
Heilssársstarfsmenn eru fjórir og starfar undir faglegri stjórn garðyrkjustjóra við
garðyrkjustörf og umhirðu gróðurs í bæjarlandinu auk viðhalds og umhirðu á
stofnanalóðum. Nýframkvæmdir taka helst til opinna svæða og frágangur við göngustíga
og gangstéttir. Yfir sumartímann fjölgar starfsmönnum verulega sumarstarfsmenn sinna
slætti, ýmissi viðhaldsvinnu, gróðursetningu og fegrun bæjarins, einnig vinnur
deildin náið með Vinnuskóla Kópavogs.
Garðyrkjuverkstjóri er Svavar Sverrisson.

Vélaverkstæði:
Tveir starfsmenn, sjá um viðhald og fyrirbyggjandi eftirlit allra tækja sem heyra undir
starfsemi Áhaldahússins, einnig er þar framkvæmd ýmis nýsmíði vegna sérhæfðra tækja
sem oft er erfitt að afla varahluta í. Yfir vetrartímann er álagið hvað mest þar sem
halda þarf snjóruðningstækjum í fullkomnu standi. Á sumrin er aðalvinnan fólgin í að
halda slátturtækjum gangandi. Verkstjóri vélaverkstæðis er Viðar Þórmóðsson.

Trésmiðja:
5 starfsmenn, undir yfirumsjón deildarstjóra fasteignadeildar, sinna viðhaldi og
breytingum á fasteignum Kópavogsbæjar, ásamt ýmiskonar nýsmíði sem til fellur.
Trésmiðjan hefur til umráða verkstæði til að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin.
Verkstjóri trésmiðju er Vermundur Þórðarson.
Jafnframt hafa þrír trésmiðir, sem sinna viðhaldi íbúða Húsnæðisnefndar, aðstöðu í Trésmiðju Áhaldahússins.
Verkstjóri þeirra er Víglundur Möller Sívertsen.

Birgðastöð:
Einn starfsmaður aflar tilboða og sér um öll innkaup á varningi vegna starfsemi Áhaldahúss.
Birgðavörður er Þórður Oddsson.
 

Upplýsingar

Framkvæmda- og tæknisvið
Fannborg 2
Sími: 570-1500
Opnunartími: 08:00 - 16:00